Tjaldsvæðið í Húsafellsskógi hefur notið mikilla vinsælda í áraraðir . Stæðin eru á miðju orlofssvæðinu og göngufæri í sund, golf, leiktæki, verslun og veitingar. Tjaldsvæðið er rétt við Hótel Húsafell.
Sjá nánari upplýsingar hér að neðan.
.
.
.
435-1556
.
.
.
Tjaldsvæðið í Húsafellsskógi hefur notið mikilla vinsælda í áraraðir . Stæðin eru á miðju orlofssvæðinu og göngufæri í sund, golf, leiktæki, verslun og veitingar. Rafmagnstenglar eru á u.þ.b. 110 stæðum og þarf tengi skv. evrópskum stöðlum. Salerni, sturta, heitt og kalt vatn auk þvottaaðstöðu. Einnig eru eru tjaldstæði á fallegum stað í Reyðafellsskógi um 2 km. frá Þjónustumiðstöðinni.
Yfir hásumarið er tendraður varðeldur öll laugardagskvöld kl. 21.
Rekin er fjölskyldustefna í Húsafelli sem m.a. snýr að því að hafðar eru þarfir fjölskyldunnar við uppbyggingu staðarins, leitast við að gera gesti meðvitaða um samfélagslega ábyrgð á uppeldi barna, að unglingar skuli ávallt vera í fylgd forráðamanna og að skemmtanir miðast við sameiginlega hagsmuni fjölskyldunnar. Umgengnisreglur Húsafells- Gangið þrifalega um landið. Brýnið góða umgengni fyrir börnum og verið þeim til fyrirmyndar.
- Látið allt rusl í ruslagáma, sem eru við innkeyrsluna á svæðinu.
- Sýnið öðrum gestum tillitsemi. Yfir nóttina frá kl. 24:00 til kl. 09:00 er stranglega bannað að vera með hávaða eða annað ónæði.
- Hlífið gróðri, bannað er að kveikja opinn eld á svæðinu. Notið ekki grill sem liggja á eða við jörð.
- Akið ekki utan vegarslóða og athugið að 20 km hámarkshraði er á sumarhúsa- og tjaldsvæðum.
- Lausaganga hunda er stranglega bönnuð og er skylt að þrífa eftir þá.
- Aðgangur ungmenna að svæðinu, án forráðamanna er takmarkaður.
- Notkun torfæruhjóla er bönnuð í landi Húsafells.
- Gerið starfsfólki aðvart ef þið verðið fyrir ónæði.
- Brot á lögum eða umgengisreglum varðar brottrekstur af svæðinu, án nokkurra bóta
Daglega eru ferðir með Into the glacier á Langjökul.
Samkvæmt sumaráætlun verður farið daglega frá Húsafelli kl 10:00, 12:00 og 14:30.
Nánari upplýsingar um Ísgöngin á Langjökli má finna á heimasíðunni www.intotheglacier.com
Einnig eru ferðir í nýuppgerðann hraunhelli Víðgelmi, ferðir í hann eru daglegar kl 10:00, 11:30, 13:00, 14:30 og 16:00.
Daglega fer skutla frá Húsafelli í Víðgelmi kl 14:10.
Nánari upplýsingar um Víðgelmi má finna á heimasíðunni www.thecave.is
Hægt er að leigja blakbolta, fótbolta, körfubolta og kubbaspil í tjaldmiðstöð.
.
Nánari upplýsingar má finna í tjaldmiðstöð og þjónustumiðstöð
eða í síma 435-1556
Verð 2018
Gestir á tjaldsvæði skulu ávallt skrá komu sína og greiða gistigjald við komu.
Húsafellsskógur tjaldstæði: | ||
Fullorðnir / Börn (7-17ára) | 1 nótt | 1.500 / 800 kr. |
Fullorðnir / Börn | 3 nætur | 1.300/ 600kr. |
Tjaldgjald á sólahring | 1 nótt | 400 kr |
Rafmagn á sólahring | 1.100 kr | |
Sumarstæði | 69.000 kr. | |
Rafmagn fyrir sumarstæði | 40.000 kr. |
Vallarsvæði 0g Reyðarfellsskógur
Fullorðnir / Börn (7-17ára) | 1 nótt | 1.100 / 600 kr. |
Fullorðnir / Börn | 3 nætur | 800 / 500 kr. |
Tjaldgjald á sólahring | 1 nótt | 400 kr |
Tengiskott | 4.000 kr |
Miðað er við að dvalartíminn sé til kl 13 næsta dag.
Sundlaug
Fullorðnir | 1.300 kr. | |
Börn – 6 – 14 ára | 400 kr | |
10 miða kort fullorðnir | 9.600 kr | |
10 miða kort börn | 2.400 kr | |
Handklæði | 1.000 kr | |
Sundföt | 1.000 kr | |
Þvottavél | 1.500 kr | |
Rúmföt | 1.800 kr | |
Smellið hérna til að skoða nánari upplýsingar um sundlaugin á Húsafelli
loading map - please wait...